Nabblablogg
Vinnustaðir og skólar
10.12.2007 21:43:39 / sif

Afmæli afmæli afmæli...

Jæja kæru Nabblar :)

Nú er víst kominn desember og þá eigum við Hörður sko afmæli ;) Okkur finnst svo merkilegt að eiga afmæli þannig að við ætlum að efna til veislu...veiveivei:) Ykkur og ykkar mökum, þar sem það á við, er boðið í afmælið okkar Harðar laugardaginn þann 15.desember n.k. Herlegheitin verða haldin á skemmtistaðnum Tropical sem er gamli Klúbburinn hjá Gullinbrú í Grafarvogi! Teitið hefst kl.20:00 og endar þegar við getum ekki meir;) Þá er komið að því allra merkilegasta við þetta allt saman......það er sko ÞEMA í gangi8|!!! ÞEMAÐ er "Crazy hairdo" og það sko heldur betur þess virði að taka þátt, því það verða veitt verðlaun í bæði karla og kvennaflokki:!: Allir aukahlutir tengdir þemanu eru leyfilegir, t.d. hárlengingar-teygjur, hárskraut, hárkollur o.s.frv.... Og annað já, það verða ljúfar og svalandi veitingar í boði;) En hey...bara fyrir þá sem taka þátt í þemanu góða:!:

Hlökkum ofsa mikið til að hitta ykkur öll á laugardaginn í feikna fjöri 8)

Kv. verðandi afmælisbörnin Sif og Hörður :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 12:08:30 / hronnsla

Leikur

Hæhæ

Vinkona mín benti mér á þennan leik, við gætum unnið fullt af vinningum ef við skráum okkur, allir að skrá níu naska nabbla og sjá hvort við vinnum eitthvað.

http://www.femin.is/article.asp?art_id=3750

Sé ykkur flestar fljótlega :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 20:40:25 / magga

Gæs gæs gæs og aftur gæs ;)

 

Hér er fína gæsin okkar :haha: Rooooooosa smart! Takið eftir banananum, en hann er það heitasta í sumar ;) 

Gæsin

gæs aftaná

Takk fyrir daginn!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 22:30:07 / mlara

... skritid...

... var búin ad skrifa inn faerslu herna fyrr í dag en hún hefur ekki verid birt! Aetladi sem sagt ad óska henni Lísu Maríu til hamingju med daginn ;) Vona ad hún hafi notid dagsins, fengid knús og kossa frá kallinum og taega og goda litla stelpu til ad halda upp á hann med sér ;)

 

Afsakid hvernig thessi faersla er half ólaesileg... tolvan mín er ad gefa sig, lyklabordid med eitthvad vesen! Thýdir ekkert ad vesenast í tví :S 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 19:01:57 / sandra

Lítill nabblastelpa komin í heiminn !!

Magga og Heiðar eru búin að eignast gullfallega stelpu. Hún er 55 cm og 16 merkur og samkvæmt foreldrunum er þetta fallegasta barn sem til er :lol:

Innilega til hamingju með stelpuna ykkar Magga og Heiðar. Við hlökkum allar til að sjá myndir af nýjasta nabblanum.:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 23:08:00 / mlara

... köngulóaát og fallahlífastökk...

... þá er það ákveðið, hittingur á góðum stað kl 20:30 núna á næstunni...

 

 

                                       ... pssstt muna, bannað að segja Söndru Rut!


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 13:47:22 / magga

...

GLEÐILEGA PÁSKA!:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 17:21:51 / magga

frægur nabbli ;)

Héðan í frá mun hún kölluð fyrirsætunabblinn! 8)

ps. Vissuð þið að það eru bara 28 dagar í krílið? :haha:

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 22:55:17 / hronnsla

Til hamingju

Til hamingju með afmælið Ragnheiður, vona að afmælisdagurinn hafi verið góður :) xxx

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 10:28:55 / ragnheidur

Myndir frá síðustu helgi

  Hæ skvísur

 Ég bjó til albúm og setti myndirnar mínar frá síðustu helgi inn. Þið getið skoðað með því að smella á Árshátíð undir myndir hér fyrir neðan vinstra megin. Ætla svo að senda ykkur login upplýsingar svo að þið getið bætt ykkar myndum við.

 Sá svo í kommentum hér fyrir neðan að það var verið að plana kaffihúsaferð á morgun, sunnudag. Veit ekki alveg hvort ég kemst ... lemur í kjós.

 Ragnheiður


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 11:44:05 / mlara

TAKK FYRIR...

... frábæran eftirmiðdag, kvöld og djamm fram eftir nóttu ;) Margrar skemmtilegar setningar fengu að fjúka, þið vitið hvað ég meina. Ég skemmti mér hörku vel, vona að ég hafi ekki verið ein í eitthverri blekkingu með það hehe... djók ;) Ég hlakka til næsta hittings hvenær og hvar svo sem hann verður!

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 16:04:32 / gunnhildur

Þá er dagskráin komin!!!

Árshátíðar dagskrá Nabblanna 2007:
Mæting í heimahús kl. 17:00 - með fylgihluti úr fortíðinni t.d. mynda albúm
Fordrykkur borinn fram kl. 17:158)
Ýmsir leikir s.s.
- hver er maðurinn?
- pakkaleikur
- bingó
- og aðrir spennandi leikir :haha:
Haldið af stað á veitingastaðinn Caruso kl. 20:00-/fáum að vera heldur afsíðis
Hver pantar fyrir sig.:lol:
Formlegri dagskrá lýkur og opið hvað hverjir vilja gera í framhaldi af matnum. 8)
-pöbbarölt
-heim
-þræða djammstaðina
- eða annað sem okkur nöbblunum dettur í hug
Kostnaður 1.000. kr. fyrir leiki, fordrykk og snarl. Hver greiðir mat fyrir sig á veitingastaðnum. (Hafið samband við Sif eða Gunnhildi varðandi þá greiðslu svo hægt sé að versla fyrir kvöldið góða sem fyrst)
Þema árshátíðarinnar er....  ???  -  hugmyndir óskast :haha:

» 21 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 13:56:57 / hronnsla

Þá-er-það-á-kveð-ið ;)

Bara svona til að koma þessu út úr kommentunum þá sýnist mér að Gunnhildur og Sif ætli sér að skipuleggja árshátíðina, við þyrftum svo kannski að koma upp einhverri reglu á þessu.......svona í framtíðinni. Ég hlakka allavega rosalega til, alltaf gaman að hittast allar, stelpur ef ykkur vantar einhverja hjálp eða ef ég get gert eitthvað, sendið bara e-mail eða skrifið á bloggið mitt.

Ef einhver er niðurdreginn og vantar eitthvað til að koma sér í betra skap, eða einhverjum langar bara til að hlæja smá þá endilega kíkið á þetta. Ég vona að þið eigið allar góða helgi :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 11:33:55 / hronnsla

nabblahittingur?

Sælar dömur,

Við vorum nokkrar að spjalla á msn í gær og þá kom upp hugmynd um að hafa nabblahitting 2.mars, eða allavega um þá helgi. Ég vildi bara kasta þessari hugmynd hérna fram og sjá viðbrögðin, það er nú dáldið þangað til þannig að við höfum smá tíma. :) Það er kannski spurning um að gera árshátíð úr þessu þar sem þetta er á þessum tíma?

Allavega látið vita hvað ykkur finnst :)


» 29 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 21:14:33 / magga

1 árs afmæli!

Skilaboð frá Lísu tölvusnilla :lol:

Saga Liv verður 1 árs næstkomandi laugardag og vil ég því bjóða ykkur (+makar og börn) í afmælisboð sunnudaginn 21. janúar kl. 17. Tengdaforeldrar mínir eru að fara aftur heim til Danmerkur þennan dag og þess vegna hef ég þetta svona seint að deginum.

Vonast til að sjá ykkur! :D

Kveðja Lísa M.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10